sektuð fyrir að brjóta
áfengisvarnarlöggjöfina?... ef ef þetta hefði nú verið listgjörningur?
fimmtudagar eru yfirleitt ágætir... svona yfirleitt...
ég vissi það alltaf... svarthöfði var aldrei ánægður með stefið sem john williams* samdi fyrir hann... máski fannst honum það bara of
ógnandi...
* var það ekki annars john williams?
nordisk
dansæfing hjá mér í kvöld... nautamjólkurmenn beðnir að halda sig fjarri...
sjáið
das leben der anderen... það er bætandi...
áhugavert að lesa svo þetta um ulrich mühe, einn aðalleikarann: In
Leben der Anderen, Das (2006), he plays an agent of the Staatssicherheit, East Germany's main security and intelligence organization. The role had particular resonance for him, who was under surveillance by the Stasi, being a noted theater actor. He later discovered that his then wife
Jenny Gröllmann was registered as an informant during their marriage. Nevertheless, she had denied that allegations until her death...
eitt gamallt ráð óvinsælla ráðamanna til að öðlast vinsældir er að búa til vandamál og leysa það svo... í útvarpinu í gær heyrði ég í eldri konu sem var ósátt við að fá ekki lengur bréf um boðun í skoðun... í fréttinni kom reyndar fram að konan sem og aðrar eldri konur væru áfram hjartanlega velkomnar í skoðun en að þær yrðu framvegis ekki sérstaklega minntar á skoðunina... konan sú var að koma af fundi hjá ákveðnum flokki, skildist mér... það kæmi mér ekki á óvart að innan skamms kæmi frétt um að ráðherra ætlaði sér að leysa þetta vandamál og leyfa eldri konum að fá áfram áminningarbréf um skoðun...
af hverju skildi það vera að stór hluti íþróttafréttatíma á íslandi fari í að segja "fréttir" af úrslitum leikja í norskri knappspyrnu?... eru þetta bara ekki einhver mistök?
ég reyndi að vera jákvæður í gærkvöldi... sá fallegann ljósgeisla standa upp í himininn og um stund trúði ég að með jákvæðni og ást gæti heimurinn orðið betri... mér fannst þessi friðarsúla falleg hugmynd og flott að sjá ljóssúluna í viðey hvar íslenskt haustveður og barnakór tóku á móti þeim sem fylgdust með því þegar kveikt var á súlunni... þó veðrið hafi verið napurt var ég nokkuð viss um hrollurinn í fólkinu varð einhverju meiri þegar kom að ræðunum... amk komst ég ekki hjá því að fá smá hroll og það þó ég sæti heima í stofu...
en friðarsúlan stendur ekki ein og sér heldur er þetta líka einhverskonar óskabrunnur... það er líka voðalega falleg hugmynd... og nú er ég ekki að segja þetta í einhverri kaldhæðni... fólk getur víst óskað sér og er óskin sett í "tímahylki" sem er grafið við súluna góðu... ég þekki ekki reglurnar sem um þetta gilda en ég gat ekki varist þeirri hugsun að ef maður fengi bara eina ósk, hvort borgarstjórinn myndi frekar óska sér að ekki hefði komist upp um spillingarmálin í kringum rei... eða að hann kynni ensku...
þetta er nú svolítið skondið...
við
harry klein eigum sama afmælisdag... já og
sean penn og
robert de niro... sem eru næstum eins miklir töffarar...